Andrea frænka mín var fermd á sunnudaginn. Hún var svo fín og flott.
02. apríl 2008
21. mars 2008
Við mæðgurnar skemmtum okkur vel í London. Það var ekkert verið að hangsa. Við sýndum á okkur fjölbreyttar hliðar og lékum mörg hlutverk. Virðulegir ferðamenn sem skoðuðu Towers of London og Tate, fórum á söngleikinn We will rock you . Gáfulegar og akademiskar og tókum þátt og vorum viðstaddar virðulega útskrift úr London university, Birkbeck. Síðast en ekki síst stelpur á ferð og æddum í búðir. Ég set að gamni hérna tvær myndir af Silju önnur er tekin af henni fyrir utan Towers en hin er tekin af henni á útskriftinni.
Hérna er meistarinn í “gallanum”
14. janúar 2008
í haust vorum við systur í “prjónaveislu” á Fanø. Þá gáfust tækifæri til að rifja upp gamla góða daga. 27 ár eru stuttur tími.
þetta er húsið þar sem foreldrar Mettu áttu heima og ráku búð og verkstæði fyrir listmuni hans. Pabbi hennar býr ennþá í í húsinu og rekur verkstæði. Það sést að vísu bara aðeins í íbúðarhúsið á þessari mynd. Það sem þá var verkstæði er núna veitingastaður sem hann á ekki lengur. Hann á sýningaraðstöðuna “búðina” og verkstæðið hans er núna í gamla svefnherberginu þeirra. En heildarmyndin er eins.
Heimsóknin til Mettu var frábær. Við kynntumst líka Oliver syni hennar hann er svo flinkur að hjóla á einu hjóli. Hann var líka áhugasamur um að læra svolítið í íslensku.
07. janúar 2008
01. janúar 2008
Nýársdagur á að vera upphaf alls góðs. Það er áríðandi að vera með góðar áætlanir á öllum sviðum. Það er ekki þannig að ég skrifi niður áramótaheitin, en ég hugleiði fyrirheit. Allavega fyrstu daga ársins. Ég er sem betur fer búin að sanna það fyrir löngu að þó maður liggur í leti á nýjarsdag þá verður maður ekki latur allt það ár.
Ég held alltaf mikið uppá þetta par – fékk það í gjöf að sumri til – í brúðkaupsgjöf.
Það fylgir nýársdegi smá leiði… jólafríið er búið. Mér þykir nefnilega skemmtilegra að setja upp jólaskraut en taka það niður.
Minnsta “Betlehemið” mitt er inni í valhnetu.
29. desember 2007
29. desember 2007
Stórfjölskyldan fór í dásamlegan göngutúr á annan jóladag í Heiðmörk. Veðrið var gott og jólasólin gaf góða von um að tekið væri að birta. Göngufærið var þokkalegt í snjónum. Við tókum góðan hring og það tók okkur tvo tíma að klöngrast hann. Nokkrar fjölskyldur voru á gönguskíðum, ég dáðist að þeim.
28. desember 2007
Ekki sjaldnar en 156 sinnum á ári
baða þrifnu frænkurnar sig fyrir jólin.
Milli baða fara þrifnu frænkurnar í búðir.
Ekki sjaldnar en 52 sinnum á ári fara þær
í allar búðir sem þær komast yfir á einum degi.
Herra þrifinn ekur þeim stundum um
á skínandi þrifna bílnum sínum.
Á milli baða og búða fá
þrifnu frænkurnar sér kaffisopa
og þá tala þær um daginn og veginn.
Þrifnu frænkurnar vilja vera hreinar og finar
þegar þær óska ættingjum og vinum
nær og fjær gleðilegra jóla.
28. desember 2007
27. desember 2007
Þessa dagana er gott að eiga jólafrí og geta farið á fætur þegar manni dettur í hug.







