desember 2007


jolar2.jpgÞað er alltaf sama þemað á jólakortinu mínu sem fer í sveitina. Það eru jólasveinar, krummi, rebbi, mýsnar og smáfuglarnir. Núna bættist heimalningurinn við í hóp málleysingjanna. Jólasveinarnir eru að stela frá honum bæði fóðurbæti og pela.

Stórfjölskyldan fór í dásamlegan göngutúr á annan jóladag í Heiðmörk. Veðrið var gott og jólasólin gaf góða von um að tekið væri að birta. Göngufærið var þokkalegt í snjónum. Við tókum góðan hring og það tók okkur tvo tíma að klöngrast hann. Nokkrar fjölskyldur voru á gönguskíðum, ég dáðist að þeim.

heidmork3.jpgsolin.jpg

ibadi1.jpg

Ekki sjaldnar en 156 sinnum á ári

baða þrifnu frænkurnar sig fyrir jólin.

ibud.jpg

Milli baða fara þrifnu frænkurnar í búðir.

Ekki sjaldnar en 52 sinnum á ári fara þær

í allar búðir sem þær komast yfir á einum degi.

bill.jpg

Herra þrifinn ekur þeim stundum um

á skínandi þrifna bílnum sínum.

ikaffi.jpg

Á milli baða og búða fá

þrifnu frænkurnar sér kaffisopa

og þá tala þær um daginn og veginn.

isundi.jpg

Þrifnu frænkurnar vilja vera hreinar og finar

þegar þær óska ættingjum og vinum

nær og fjær gleðilegra jóla.

tre1.jpg

Grenitrén í Heiðmörk svignuðu undan snjónum.  Eftir veðurspánni að dæma fyrir áramótin þá þurfa trén að berjast við vindinn en ekki snjóinn !

Þessa dagana er gott að eiga jólafrí og geta farið á fætur þegar manni dettur í hug.