Við mæðgurnar skemmtum okkur vel í London. Það var ekkert verið að hangsa. Við sýndum á okkur fjölbreyttar hliðar og lékum mörg hlutverk. Virðulegir ferðamenn sem skoðuðu Towers of London og Tate, fórum á söngleikinn We will rock you . Gáfulegar og akademiskar og tókum þátt og vorum viðstaddar virðulega útskrift úr London university, Birkbeck. Síðast en ekki síst stelpur á ferð og æddum í búðir. Ég set að gamni hérna tvær myndir af Silju önnur er tekin af henni fyrir utan Towers en hin er tekin af henni á útskriftinni.
Hérna er meistarinn í “gallanum”
02. apríl 2008 at 4:10 pm
Oh hún er svo mikið bjútí hún frænka! Tilhamingju með dótturina og glæsilegan áfanga. Það hefur greinilega verið stuð hjá ykkur í london. Ég heimta að það verði einhverntímann hittingur í köben með ykkur og mömmu… nægur tími þar sem ég er ekki aaaalveg búin ehem.